Þjóðhátíð verður haldin í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina að vanda og hefur nú verið tilkynnt um listamenn til viðbótar sem munu spila í ár. Eru það Páll Óskar, NýDönsk og Júníus Meyvant.
Áður hafði verið tilkynnt að FM Belfast og AmabAdamA kæmu til með að spila á Þjóðhátíð í ár.
Páll Óskar hefur margsinnis skemmt fólkinu í dalnum og þar á meðal með þjóðhátíðarlagi sínu La Dolce Vita árið 2011.
Margir eru eflaust orðnir langeygir eftir sumrinu en þó svo að enn sé nokkuð í sól og sumaryl er undirbúningur fyrir stærstu hátíð sumarsins kominn nokkuð á veg.
Hápunktar í dagskrá Þjóðhátíðar eru hefðbundnir og hafa staðist tímans tönn. Þessir dagskrárliðir eru brenna á Fjósakletti á föstudagskvöldi, vegleg flugeldasýning á laugardagskvöldi, brekkusöngur og blys á sunnudagskvöldi.