Sífellt fleiri fréttir berast nú af því að Taylor Swift og Calvin Harris séu að slá sér upp. Nú gengur mynd um netheima, sem á að sýna parið saman á tónleikum í Nashville.
Á myndinni, sem verður að teljast afar óskýr, má sjá par leiðast, sem heimildir herma að séu þau. Annar gestur á tónleikunum sem ræddi við dagblaðið The Mirror segir að Swift hafi setið á fangi Harris og að þau hafi kysst hvort annað reglulega.
Fjölmiðlar hafa bent á þá skemmtilegu staðreynd að þegar Harris var gestur á útvarpsstöðinni Capital FM var hann beðinn um að „swipe-a“ til hægri eða vinstri þegar hann sá frægar kvenkyns stjörnur, líkt og í stefnumótaforritinu Tinder. Þegar nafnið Taylor Swift kom upp, dró hann mynd hennar til vinstri og gaf þannig til kynna að hann hefði ekki áhuga. „Hún er falleg, en ég held hún sé allt öðruvísi týpa en sú sem ég er að leita að,“ sagði Harris.