„Ég hefði átt að gúggla betur“ er nýjasti poppsmellurinn á netinu, en lagið er óvenjulegt að því leiti að það er unnið upp úr Kastljósviðtali þar sem Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina, var gestur.
Í viðtalinu viðurkenndi Sveinbjörg m.a. að það hefðu verið mistök að skipa Gústaf Níelsson sem varamann í mannréttindaráði borgarinnar, og þá lét hún ofangreind ummæli falla.
Á vef Nútímans hefur verið birt myndskeið þar sem málið er útskýrt á einkar hressandi og melódískan hátt, en fréttavefurinn fékk Þorstein Baldvinsson til að smíða popplag úr frammistöðu hennar í viðtalinu í gær.
Sjón er sögu ríkari.