Sá orðrómur hefur komist á kreik að söngkonan Rihanna og leikarinn Leonardo Dicaprio eigi í ástarsambandi þar sem þau hafa sést mikið saman á undanförnum vikum. Rihanna greindi þó frá því í viðtali við Hello að hún hefði engan tíma fyrir karlmenn þessa stundina.
„Ég held að maður ætti að halda sig fjarri bloggum. Þau munu rugla í þér,“ sagði Rihanna aðspurð hvort að hún og Dicaprio væru að „deita“ og gaf í skyn að eitthvert bloggið hefði komið þessum falska orðróm af stað.
„Ég er svo upptekin núna þannig að ég hef ekki upp á mikinn frítíma að bjóða, það væri ekki sanngjarnt af mér að draga einhvern annan inn í þetta líf,“ útskýrði Rihanna. Þá hélt hún áfram og sagði að þeir menn sem hún hittir þurfi að vera mikil hörkutól til að þora að takast á við hennar tímaáætlun.
Sömuleiðis greindi talsmaður Dicaprio frá því að leikarinn væri einhleypur og hefði verið það í einhvern tíma.