Breski sjónvarpsmaðurinn Jeremy Clarkson, sem rekinn var af breska ríkisútvarpinu BBC, fyrr á árinu þar sem hann var með þáttinn Top Gear, stefnir að því að setja á laggirnar nýjan þátt sem einnig fjalli um hraðskreiðar bifreiðar og annað slíkt.
Fram kemur í frétt AFP að Clarkson hafi upplýst þetta í dag. Hann ætlaði að byrja aftur á nýjan leik með nýjan þátt. Þættir Clarksons Top Gear voru gríðarlega vinsælir og stjórnaði hann þeim í 12 ár þar til hann var rekinn fyrir að ráðast á einn af framleiðendum þáttanna.
„Ég hef misst barnið mitt en ég ætla að búa til nýtt,“ segir hann í nýjum pistli í dagblaðinu Sunday Times. „Ég veit ekki hvert hitt foreldrið verður eða hvernig barnið mun líta út en ég get ekki lengur eytt tímanum í að skipuleggja myndaalbúmin mín.“
Þá upplýsir Clarkson að tveimur dögum áður en hann var rekinn hafi honum verið tjáð að þykkildi á tungunni í honum væri líklega krabbamein. Síðar hafi komið í ljós að svo hafi ekki verið. „Þetta var gríðarlega stressandi, allt var á niðurleið, og síðan ... gerðist þetta.. En allir eiga erfiða daga og tekst að ráða betur við þá en ég gerði.“
<br/><br/>Clarkson segist hafa velt fyrir sér að hætta alfarið í sjónvarpi en síðan ákveðið að ekkert vit væri í því. Það eina í stöðunni væri að koma á laggirnar nýjum bílaþætti.