Baltasar Kormákur varð heiðraður með sérstökum verðlaunum á alþjóðadegi CinemaCon, ráðstefnu bandarískra kvikmyndahúsaeigenda, í gærkvöldi.
Verðlaununum fylgir titillinn alþjóðlegur kvikmyndagerðarmaður ársins.
Brot úr nýjustu kvikmynd Baltasars, Everest, var sýnd við tilefnið en myndin verður frumsýnd um miðjan september.