Leikarinn Bradley Cooper hætti nýverið með kærustu sinni, Suki Waterhouse, en hann var ekki lengi að jafna sig á sambandsslitunum. Leikarinn sást nefnilega á stefnumóti með fyrirsætunni Irina Shayk sem er fyrrverandi kærasta fótboltakappans Cristiano Ronaldo.
Samkvæmt heimildum People skelltu Cooper og Shayk sér saman á leikritið Finding Neverland.
Cooper og Waterhouse hættu saman í seinasta mánuði eftir tveggja ára samband. Fregnir herma að Cooper hafi gefist upp á sambandinu því honum þótti Waterhouse ekki sýna leiklistarferli hans nægan áhuga.
Shayk og Ronaldo hættu saman fyrr á árinu. Fyrirsætan gerði sambandsslitin upp í viðtali við spænska tímaritið Hola og gaf þá í skyn að fótboltakappinn hefði haldið fram hjá henni.