„Ekki aðeins gat ég kallað hann eiginmann minn í 25 ár og föður barna minna, heldur get ég nú einnig kallað hann hetjuna mína,“ skrifaði Kris Jenner, fyrrverandi eiginkona Bruce Jenner, á Twitter-síðu sína í dag.
Eins og fram hefur komið kom ólympíugullverðlaunahafinn og raunveruleikastjarnan út sem transkona í nótt. Fjölmargir hafa sýnt henni stuðning og samfélagsmiðlar hafa logað í allan dag.
„Hvað öllum ásetningi og tilgangi líður er ég kona,“ sagði Jenner í viðtali, sem beðið hafði verið með eftirvæntingu, við Diane Sawyer á ABC rásinni .
Jenner, sem er 65 ára, segist hafa átt í baráttu við kynvitund sína frá því hún var barn.
Not only was I able to call him my husband for 25 years and father of my children, I am now able to call him my hero.
— Kris Jenner (@KrisJenner) April 25, 2015
Jenner er stjúpfaðir raunveruleikastjarnanna Kim, Kourtney og Khloe Kardashian og var tíður gestur í þáttunum „Keeping Up with the Kardashians“. Einnig eru bræður systranna, þeir Robert og Brandon, stjúpsynir hennar og loks eru Kylie og Kendall Jenner dætur hennar. Öll börn og stjúpbörn Jenners hafa lýst yfir stuðningi sínum við hana í kjölfar viðtalsins.
Yngsta dóttirin, Kylie, viðurkennir þó að þetta hafi reynst henni erfitt og hún muni tjá sig síðar um það - en hún sé hins vegar afar stolt af föður sínum.
Love is the courage to live the truest, best version of yourself. Bruce is love. I love you Bruce. #ProudDaughter pic.twitter.com/7ZJ6FuMHfU
— Kim Kardashian West (@KimKardashian) April 25, 2015
so very proud of you, my hero.
— Kendall Jenner (@KendallJenner) April 25, 2015
Understandingly, this has been very hard for me. You will hear what I have to say when I'm ready to but...
— Kylie Jenner (@KylieJenner) April 25, 2015
..this isn't about me. I'm so proud of you, Dad. You are so brave. My beautiful Hero.
— Kylie Jenner (@KylieJenner) April 25, 2015
Couldn't be a more proud daughter. With courage and bravery, let's change the world. I am honored to stand by Bruce's side and support him.
— Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) April 25, 2015
<a href="https://instagram.com/p/14H8rkO6f1/" target="_top">Proud son.</a>
A photo posted by Brandon Jenner (@brandontjenner) on Apr 24, 2015 at 4:57pm PDT
You have always been a role model to me and now more than ever, I look up to you. LOVE YOU‼️‼️👐👐
— ROBERT KARDASHIAN (@robkardashian) April 25, 2015Vangaveltur um „kynáttunarvanda“ Jenner hafa fyllt slúðurmiðla mánuðum saman þrátt fyrir að hún hafi sjálf ekki tjáð sig opinberlega um kyn sitt fyrr en nú. Hafa miðlarnir m.a. fært fréttir af því að hún hafi sést með rakaða útlimi, sítt hár í tagli og í íþróttabrjóstahaldara undir stuttermabol og þótt það vísbendingar um að hún væri í kynleiðréttingarferli.
Eitt af því sem talið var að Jenner myndi greina frá í viðtali sínu við Sawyer var nýtt nafn hennar sem kona. Hún sagðist skilgreina sig undir persónufornafninu „hún“ en að hún hefði ekki valið sér sérstakt kvenmannsnafn. Þrátt fyrir þetta notaði Sawyer endurtekið persónufornafnið „hann“ í gegnum viðtalið og margir erlendir miðlar hafa leikið það eftir í umfjöllun sinni um Jenner í dag.
Fjölmargar stjörnur hafa lýst yfir stuðningi við Jenner í dag og virðast margir taka upp sama sið og nota persónufornafnið „hann“. Stuðningurinn leynir sér þó ekki.
"All of us deserve the right to be loved for who we are ". Bravo #BruceJenner
— Oprah Winfrey (@Oprah) April 25, 2015Bruce Jenner is one the bravest humans out there. Him and his whole family deserve all the support and love the world can give. ❤️ #family
— Cara Delevingne (@Caradelevingne) April 25, 2015Absolutely flawed at how courageous and brave Bruce Jenner is. So inspiring and so powerful. Shame on anyone who dare judge x
— SAM SMITH (@samsmithworld) April 25, 2015Bruce Jenner is a beautiful, brave human being. Sending him lots of love. He's saving lives and opening minds tonight.
— Ellen DeGeneres (@TheEllenShow) April 25, 2015Frétt mbl.is: Stelpa í líkama stráks