Holur verða að typpum og rössum

Wansky vekur athygli á holum í vegum með því að …
Wansky vekur athygli á holum í vegum með því að mála á þær typpi. Af Facebook-síðu Wanksy

Listamaður frá Greater Manchester í Bretlandi hefur farið ansi óvenjulega leið að því að mótmæla lélegu ástandi gatna í heimabæ sínum. Síðustu vikur hefur hann nefnilega tekið sig til og málað typpi og rassa á fjölmargar holur í vegum.

Listamaðurinn kallar sig Wanksy en vill ekki láta raunverulegs nafns síns getið. Í viðtali við Manchester Evening News sagðist hann vilja vekja athygli á þessu hræðilega ástandi, eftir að vinir hans sem eru hjólreiðamenn slösuðu sig alvarlega vegna holna í vegum.

„Ég vildi beina athygli að holunum og gera þær minnisstæðar. Ekkert virtist gera það betur en risavaxinn skondinn getnaðarlimur,“ sagði hann. „Það tekur einnig stuttan tíma. Ég vil ekki vera á veginum í langan tíma. En þetta virðist vera orðið kennimerki mitt. Ég vil bara kalla fram bros og vekja athygli á vandamálinu.“

Wanksy notar málningu sem hverfur af götunum innan tveggja vikna. Hann segist þó hafa náð árangri með myndunum, en vegahaldarar virðast fylla hraðar í holurnar núna að hans sögn.

Yfirvöldum á svæðinu er þó ekki skemmt. „Þetta er ekki aðeins heimskulegt heldur einnig gríðarlega móðgandi fyrir þá sem hér búa,“ sagði talsmaður bæjarstjórnar í Bury í Greater Manchester. „Hefur þessi manneskja hugsað um það hvernig fjölskyldum með ung börn hlýtur að líða þegar þeir sjá þessi klámfengnu merki á leið í skólann? Ekki aðeins eru þetta skemmdarverk, heldur er þetta einnig gríðarlega óhagkvæmt,“ bætti hann við. „Með hverri krónu sem við eyðum í það að hreinsa þetta af götunum fækkar þeim krónum sem við getum eytt í það að raunverulega laga holurnar.“

Facebook-síða Wanksy.

Typpin koma í ýmsum útgáfum.
Typpin koma í ýmsum útgáfum. Af Facebook-síðu Wanksy
Sum eru stærri en önnur.
Sum eru stærri en önnur. Af Facebook-síðu Wanksy
Í sumum tilfellum verður holan þó að annars konar holu.
Í sumum tilfellum verður holan þó að annars konar holu. Af Facebook-síðu Wanksy
..og enn aðrar útgáfur eru einnig til.
..og enn aðrar útgáfur eru einnig til. Af Facebook-síðu Wanksy
Wanksy sýnir fram á að gjörningur hans hafi náð árangri …
Wanksy sýnir fram á að gjörningur hans hafi náð árangri en búið er að fylla í nokkrar holur eftir að hann málaði á þær. Af Facebook-síðu Wanksy
Hér hefur einnig verið fyllt í holurnar.
Hér hefur einnig verið fyllt í holurnar. Af Facebook-síðu Wanksy
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það ríður á miklu að hafa hlutina í jafnvægi svo gættu þess að forgangsraða rétt til þess að ná árangri. Horfðust í augu við það sem þú forðast.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það ríður á miklu að hafa hlutina í jafnvægi svo gættu þess að forgangsraða rétt til þess að ná árangri. Horfðust í augu við það sem þú forðast.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir