Leikarinn George Clooney fékk snemmbúna afmælisgjöf frá eiginkonu sinni, lögfræðingnum Amal Clooney, um helgina en George á afmæli 6. maí.
Amal er greinilega ekki að spara því hún keypti 27 milljón króna bíl handa sínum heittelskaða í tilefni afmælisins.
Fregnir herma að Porsche 911 GT3 RS-bíll hafi orðið fyrir valinu. George er eflaust himinlifandi með gjöfina en hann hefur mikinn áhuga á bílum. „George elskar bíla. Þeir þurfa að vera smekklegir og hraðskreiðir og hann á alltaf tvo,“ sagði heimildamaður Daily Mirror.
George Clooney verður 54 ára á miðvikudaginn.