Fregnir herma að söngkonan Rihanna hafi meinað tónlistakonunni Ritu Ora aðgang í eftirpartýið sitt sem hún hélt eftir Met Gala ballið á mánudaginn. Söngkonurnar þola víst ekki hvor aðra.
Rihanna hélt heljarinnar veislu á Up & Down næturklúbbnum í New York eftir Met Gala ballið. Ótal stjörnur flykktust í partýið en það voru greinilega ekki allir velkomnir.
„Hún hefur eitthvað mikið á móti Ritu og þetta var hennar tækifæri til að hefna sín á henni,“ sagði heimildamaður The Sun.
Heimildamaðurinn greindi einnig frá því að Rihanna hafi gert í því að tala mikið við fyrirsætuna Cara Delevingne um kvöldið en Cara og Rita voru eitt sinn bestu vinkonur. Rihanna hugsaði með sér að þetta gæti pirrað Ritu.
Rita Ora varði kvöldinu með Miley Cyrus og talsmaður Ritu vill meina að hún hafi skemmt sér konunglega.