Bubbi & Dimma munu koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Þjóðhátíð í Eyjum fer fram 31. júlí - 2.ágúst og dagskráin hefur aldrei litið betur út - það er búið að staðfesta FM Belfast, AmabAdamA, Pál Óskar, Ný Dönsk, Sálina hans Jóns míns, Júníus Meyvant, Land & Syni, Sóldögg, Maus, FM95Blö og nú er búið að staðfesta hið magnaða tvíeyki Bubba & Dimmu sem slegið hafa í gegn undanfarið með magnaðri tónleika-upplifun. Þetta stórkostlega samstarf mun ná hámarki á stóra sviðinu í Herjólfsdal og ljóst að Þjóðhátíðargestir eiga von á einstakri upplifun,“ segir orðrétt í fréttatilkynningu.