Íslensk veðrátta getur stundum verið ansi hörð í horn að taka og því fékk ferðamaðurinn Mark Tretter að kynnast á ferð sinni hér á landi fyrr á þessu ári. Hann tók upp myndband af sér þar sem hann fer út í hina hörðu norðaustan átt hér á landi og reynir að skella í sig góðum vatnssopa úr flösku. Sjón er sögu ríkari, en í stuttu máli er ljóst að íslensk veðrátta sigraði í þessari tilraun hans.
Það er þó ekki bara vatnið sem fer út um allt, því vindurinn tekur Tretter og feykir honum um koll undir lok myndbandsins.