Hjónin Chrissy Teigen og John Legend sýna allt í nýjum og einlægum myndaþætti sem birtist í nýjasta tölublaði Dujour.
Á myndunum má meðal annars sjá Legend og Teigen liggja saman uppi í rúmi. Teigen fækkaði svo fötum fyrir nokkrar myndir myndaþáttarins og setti sig í stellingar á ströndinni.
Myndaþættinum fylgir þá viðtal þar sem þau tjá sig um barneignir og framtíðina. „Teigen segir að ég sé of lítill íþróttamaður til að eignast strák. Ég er tónlistamaður, ég er góður í kringum konur og ég er femínisti. Ég held að ég verið góður stelpu-pabbi,“ sagði Legend.
„Við viljum eignast mörg börn. Ég myndi vilja eignast þrjú eða fjögur börn sjálf og svo ættleiða nokkur. Svo, ég verð líklegast ólétt það sem eftir er ævinnar,“ bætti Teigen við.