Raunveruleikastjarnan Rob Kardashian er farinn í meðferð. Rob lagðist inn á meðferðaheimili í Palm Beach um helgina og mun dvelja þar næstu 60 daga. Þar ætlar hann að takast á við eiturlyfja- og áfengisfíkn sína.
Það var fjölskylda hans og vinir sem hvöttu hann til að fara í meðferð við fíkn sinni sem hefur farið úr böndunum á undanförnum mánuðum.
Vinur Rob, lífvörðurinn Mark Behar, tjáði sig um málið í viðtali við Gossip Extra. Behar sagði Rob vera staðráðinn í að ná tökum á fíkninni og koma sér í gott líkamlegt form í leiðinni. „Hann mun líklegast missa fimm til tíu kíló á næstu vikum, bara með því að fylgja prógramminu.“
Kardashian-bróðirinn á erfitt