Um 150 viðburðir á tveimur mánuðum

Roni Horn.
Roni Horn. mbl.is/Rax

Ísland verður í forgunni á listahátíðinni Culturescapes 2015 sem haldin verður í 11. sinn í Sviss dagana 2. október til 29. nóvember nk. Allar listir eru undir, jafnt bókmenntir, dans, leiklist, tónlist, kvikmyndir, hönnun og myndlist, en stór hópur listamanna tekur þátt. Á ofangreindu tveggja mánaða tímabili verður boðið upp á tæplega 150 viðburði, þ.ám. tónleika, fyrirlestra, myndlistarsýningar og kvikmyndasýningar. Á síðustu árum hafa rúmlega 20 þúsund gestir sótt viðburði hátíðarinnar árlega. Ráðgert er að hátíðin kosti eina milljón evra eða tæplega 150 milljónir íslenskra króna og því óhætt að fullyrða að þetta sé ein stærsta listahátíð með Ísland í forgrunni sem haldin er utan landsteinanna.

„Markmið hátíðarinnar er að skoða menningarlandslag einnar þjóðar, landsvæðis eða borgar,“ segir Jurriaan Cooiman, listrænn stjórnandi og stofnandi listahátíðarinnar Culturescapes. Bendir hann á að menningin sé mörkuð af tungumálinu og umhverfinu þar sem hún verði til sem og af pólitísku landslagi þar sem ráðamenn reyna ítrekað að endurskrifa söguna sér í hag.

„Við sáum mjög skýrt dæmi um þetta þegar lönd Balkanskagans voru í forgrunni hátíðarinnar árið 2013 að allar þjóðirnar studdust við ólíkar sögubækur um nýliðna atburði,“ segir Cooiman og nefnir loks sem áhrifavald á menninguna hvers kyns áföll. „Í tilviki Íslands er borðleggjandi að nefna efnahagshrunið 2008 auk þess sem þjóðin býr við stöðuga ógn frá náttúrunni í formi eldsumbrota og jarðskjálfta.“

Spurður hvers vegna Ísland hafi orðið fyrir valinu í ár segir Cooiman að sér hafi fundist spennandi að koma með mjög skýrt mótvægi við hátíð síðasta árs þar sem Tókýó, stærsta borg heims, var í brennidepli. „Ísland er mjög spennandi fyrir margra hluta sakir. Saga landsins er ekki nema rúmlega 1.200 ára gömul og íbúafjöldinn er aðeins 1% af Tókýó. Landfræðilega er Ísland mjög skýrt markað í ljósi þess að vera eyja, sem setur djúp spor á íbúana og menninguna,“ segir Cooiman sem lagði leið sína margsinnis til Íslands við undirbúning hátíðarinnar. „Rannsókn mín á íslensku listalífi hófst í maí 2014 þegar ég kom til Íslands til að skoða Listahátíð í Reykjavík, en í framhaldinu kom ég á Iceland Airwaves, Lókal, Reykjavík Dance Festival, Myrka músíkdaga og Hönnunarmars auk þess sem ég átti fundi með listafólki og ráðamönnum,“ segir Cooiman og tekur fram að hann sé afar ánægður með og stoltur af komandi dagskrá.

Meðal þeirra íslensku listamanna sem staðfest hafa þátttöku sína á Culturescapes 2015 eru Sóley, Anna Þorvaldsdóttir, Daníel Bjarnason, Andri Snær Magnason, Schola Cantorum, Ragnar Helgi Ólafsson frá Tunglbókum, Erna Ómarsdóttir, Skúli Sverrisson, ADHD, Sunna Gunnlaugs, Yrsa Sigurðardóttir, Friðgeir Einarsson, Gusgus, Kling & Bang, Kunstschlager, Ragna Róbertsdóttir, Pétur Thomsen, Egill Snæbjörnsson, Ragnar Kjartansson, Gjörningaklúbburinn og Víkingur Heiðar Ólafsson, auk þess sem beðið er staðfestingar frá Jóni Gnarr og Sjón, en tæmandi þátttakendalisti verður ekki kynntur fyrr en á blaðamannafundi í Basel um miðjan september.

Áhugasamir um Ísland

„Auk þess tekur þátt hópur svissneskra listamanna sem búið hafa og starfað á Íslandi, s.s. Christoph Büchel, Dieter Roth, Roman Signer, Silvia Bächli og Eric Hattan,“ segir Cooiman og bendir á að einnig taki þátt bandaríska listakonan Roni Horn sem hefur mikið unnið hérlendis. Cooiman segir Biophilia-verkefni Bjarkar verða kynnt á hátíðinni auk þess sem sýndar verði nýlegar íslenskar kvikmyndir, en endanlegt val liggur ekki fyrir.

Aðspurður segir Cooiman um helming viðburða hátíðarinnar fara fram í Basel, en hinn helmingurinn dreifist víða um Sviss. „Við leggjum mikið upp úr því að viðburðir hátíðarinnar rati sem víðast. Sem dæmi má nefna að Schola cantorum heldur fimm tónleika víðs vegar um landið, Ragnar Kjartansson sýnir bæði í Zürich og Basel og ný kammerópera Önnu Þorvaldsdóttur verður flutt bæði í Basel og Chur,“ segir Cooiman og leggur mikla áherslu á að hátíðin sé haldin í náinni samvinnu við ýmsar lista- og menningarstofnanir í Sviss. „Markhópur okkar er listunnendur sem þegar sækja hinar ýmsu menningarstofnanir hérlendis,“ segir Cooiman og tekur fram að hann búist við góðri aðsókn svissneskra listunnenda í haust. „Enda eru Svisslendingar mjög áhugasamir um Ísland og margir ýmist nýbúnir að heimsækja landið eða á leiðinni, enda auðvelt að fljúga með Easy Jet frá Basel til Keflavíkur,“ segir Cooiman og bendir á að samkvæmt tölfræðinni séu Svisslendingar ört stækkandi hópur meðal ferðamanna á Íslandi.

Eins og fyrr sagði kostar um eina milljón evra að halda hátíðina og því liggur beint við að spyrja hvernig hátíðin sé fjármögnuð. „Við rekum ekki okkar eigið húsnæði heldur störfum í mjög nánu samstarfi við leikhús, tónleikastaði, söfn og háskóla,“ segir Cooiman og tekur fram að í því formi leggi samstarfsaðilar til þriðjung þess fjár sem kosti að reka hátíðina. „Þriðjungur fæst frá svissneskum styrktaraðilum og stofnunum og loks kemur þriðjungur frá því landi sem er í brennidepli hverju sinni,“ segir Cooiman og nefnir í því samhengi framlög frá íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, Miðstöð íslenskra bókmennta og Icelandair.

Jurriaan Cooiman.
Jurriaan Cooiman.
Ragnar Kjartansson.
Ragnar Kjartansson. mbl.is/Golli
Víkingur Heiðar Ólafsson.
Víkingur Heiðar Ólafsson. Einar Falur Ingólfsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav