Bónorðin gerast ekki krúttlegri en þetta.
Fyrrum leikmaður Norh Carolina State, Alex „Superman“ Johnson, skoraði á kærustuna sína, Brey Dorsett, í maður á mann. Í einni sókninni lét hann sig detta og vinir hans flykktust að til að hjálpa honum. Þeir voru þó í raun að rétta honum trúlofunarhring svo lítið bæri á og þegar Johnson stóð upp fór hann aðeins hálfa leið, upp á annað hnéð.