Caitlyn Jenner, sem setti á sínum tíma Ólympíumet undir nafninu Bruce í tugþraut, sló í dag annað heimsmet, þar sem hún var fyrst til að eignast milljón fylgjendur á Twitter.
Það tók Jenner ekki nema fjóra tíma og þrjár mínútur að rjúfa milljónarmarkið og sló þar með met Barack Obama.
Þegar þetta er skrifað eru fylgjendur Caitlyn Jenner 1,4 milljónir, og má búast við að þeim fjölgi ört á næstunni.
Caitlyn Jenner á forsíðu Vanity Fair