Ungstirnið Jaden Smith, sonur leikarans Will Smith, hefur eflaust vakið mikla athygli á lokaballinu sem hann sótti ásamt leikkonunni Amöndu Stenberg á föstudaginn því hann mætti í kjól.
Hinn 16 ára Jaden er óhræddur við kastljósið og gerir í því að vekja á sér athygli. Það gerði hann svo sannarlega á föstudaginn þegar hann mætti í síðum kjól, strigaskóm og með hvítar grifflur á skólaball.
Amanda Stenberg, sem klæddist líka síðum kjól, virtist vera ánægð með klæðaval Jadens því hún birti mynd af sér og Jaden á Instagram á þessum stóra degi.