Hollywood-hjónin Ben Affleck og Jennifer Garner eru að skilja eftir tíu ára hjónaband og fregnir herma að þau hafi ekki gert kaupmála á sínum tíma.
„Eftir miklar vangaveltur og umþóttun höfum við tekið þá ákvörðun að skilja,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra hjóna sem virðast vera að skilja á vinalegum nótum.
Hvorugt þeirra mun fara fram á framfærslueyri við skilnaðinn eftir því sem fram kemur í frétt TMZ.
Eignaskiptin ganga vel fyrir sig þrátt fyrir að hjónin hafi ekki verið búin að ákveða neitt fyrirfram. Samkvæmt heimildamanni TMZ hafa þau Affleck og Garner lagt fyrir í gegnum árin og hafa það því gott fjárhagslega.
Ben Affleck og Jennifer Garner skilja