Hjartaknúsarinn Channing Tatum kom sér í fantaform fyrir kvikmyndina Magic Mike XXL en núna er hann hættur að æfa stíft og bumban er farin að gera vart við sig.
Tatum er með „einn stóran mjúkan magavöðva“ að eigin sögn. „Ég elska mat og ég elska að leyfa mér. Konan mín fær löngun í hollan mat, ég er andstæðan,“ sagði leikarinn í viðtali við tímaritið Time Out.
Tatum kveðst hafa verið horaður sem barn þrátt fyrir að borða flögur og kökur eins og hann fengi borgað fyrir það. „Unnar matvörur, sykur og salt. Þetta ólst ég upp við, og ég var horaður,“ sagði Tatum sem skartaði ótrúlegum magavöðvum í kvikmyndinni um stripparann Mike.
„Þegar maður kemst á ákveðinn aldur verður auðvelt að bæta á sig,“ útskýrði Tatum sem sleppti sér um leið og upptökum á myndinni Magic Mike XXL lauk. „Ég hef ekki farið í ræktina síðan. Ég veit ég þarf að fara.“