Hljómsveitin Public Enemy steig á svið á ATP hátíðinni nú í kvöld og létu liðsmenn hennar þau orð falla að þeim hafi verið aldrei verið tekið jafnvel á ferlinum.
Blaðamaður mbl.is er á staðnum og segir hann stemninguna á þessum fyrsta degi hátíðarinnar góða, margt sé um manninn en að merkja megi nokkra lykt af kannabis í loftinu. Veðrið þykir eins gott og við má búast af íslenskri sumarhátíð því þó það sé skýjað er hlýtt og milt í veðri.