Tvífari leikkonunnar Angelinu Jolie, hin 27 ára Veronika Black, er að leita að tvífara Brads Pitts því hún hefur áhuga á að ganga í það heilaga og stofna fjölskyldu.
Black þykir nauðalík Jolie en hún gerir í því að klæða sig og farða eins og leikkonan því hún nýtur athyglinnar sem hún fær út á útlitið. Black segir útlitið reyndar stundum gera sér erfitt fyrir. „Karlmenn virðast hræðast mig. Stundum verða karlmenn virkilega taugaóstyrkir í kringum mig og byrja að skjálfa. Það þykir mér skrýtið því ég er almennileg manneskja.“
En Black ætlar ekki að gefast upp, hún er að leita að sálufélaganum. „Ég fíla eldri menn sem eru eins og Brad Pitt. Ég nýt þess að vera einhleyp en ég hef samt áhuga á að ganga í það heilaga og stofna fjölskyldu. Ég vil bara finna minn eigin Brad Pitt,“ sagði Black í viðtali við Daily Mail.