Það er óhætt að segja að Khloe Kardashian hrífist af körfuboltaköppum en hún sást nýverið á stefnumóti við James Harden sem spilar með Houston Rockets í NBA deildinni.
Orðrómur hefur verið uppi um að stjörnurnar séu að stinga saman nefjum en nú sást til þeirra á stefnumóti á veitingastaðnum Red 8 Asian í Las Vegas síðastliðinn laugardag. Samkvæmt sjónarvottum var parið afar ástfangið. Eftir matinn fóru þau svo á skemmtistaðinn Drai‘s til að hlýða á tónlistarmanninn Chris Brown.
Kardashian sem er enn löglega gift körfuboltamanninum Lamar Odom er sögð hafa kynnst Harden í afmælisveislu Kanye West sem giftur er Kim Kardashian systur Khloe.
Í frétt In touch um málið kemur fram að fyrrverandi kærasta Harden, Trina, hafi birt skilaboðin: „sloppy second“ á Twitter síðu sinni stuttu eftir að fréttirnar bárust.
Sambandið er þó ekki endilega nýtt af nálinni en sjónarvottar hafa greint frá því að parið hafi farið í frí saman til Hawaii. Þá segist íþróttabloggarinn Terez Owens hafa séð parið kyssast á skemmtistaðnum Addiction fyrr í júní. Þau eru sögð hafa yfirgefið staðinn sitt í hvoru lagi en enduðu kvöldið saman á hóteli.