Cara Delevingne birtist í viðtali við bandaríska morgunþáttinn Good Day Sacramento vegna hlutverks síns í kvikmyndinni Paper Towns. Í miðju viðtali báðu fréttamennirnir Delevingne um að fara heim og leggja sig eða fá sér Redbull. Fyrir það voru þeir ítrekað búnir að spyrja hana hvort hún væri pirruð, þreytt eða í vondu skapi.
Þá byrjaði viðtalið með þeim hætti að fréttamaður kynnti Cöru inn sem Cörlu. Í lok myndbandsins heyrist svo í Delevingne segja: „þetta er of langt gengið.“
Hér að meðan má sjá myndbandið sem að þykir afar vandræðalegt.