Rapparinn Kanye West lýsti aðdáun sinni á Caitlyn Jenner í þáttinum I Am Cait. Þar birtist hann ásamt eiginkonu sinni Kim Kardashian sem er stjúpdóttir Jenner.
„Ég held að kynleiðrétting sé eitt af því erfiðasta sem hægt er að gera í lífinu. Þetta er sérstaklega erfitt fyrir þig þar sem að þú stendur frammi fyrir öllum heiminum. Dóttir þín er ofurfyrirsæta og þú ert stjarna. Það þarf mikinn kjark til að standa upp og segja svona er ég.“
Þá hrósaði Jenner West einnig fyrir að hjálpa stjúpdóttur sinni Kim Kardashian í gegnum þessa erfiðu tíma og rifjaði upp samtal á milli West og Kardashian. Þar sagði West að sama þó svo að hann ætti fallegustu og bestu dóttir í heimi, North West, þá væri hann ekkert ef hann mætti ekki vera hann sjálfur. Það voru þessi orð sem hjálpuðu Kardashian að átta sig á því hvað Jenner var að ganga í gegnum.
Frétt mbl.is - Caitlyn Jenner á forsíðu Vanity Fair