Rokkhljómsveitin Foo fighters ætlar að fara til Cesena í norðurhluta Ítalíu og spila fyrir aðdáendur sína og svara þannig kalli þeirra um komu sveitarinnar. Á fimmtudaginn var sett inn myndskeið þar sem þúsund aðdáendur sveitarinnar spiluðu lagið Learn to fly og endaði flutningurinn með ákalli um að sveitin kæmi í héraðið, en þar spilaði hljómsveitin síðast árið 1998.
Hljómsveitin setti fljótlega inn póst á Twitter þar sem aðdáendum var svarað á auðmjúkan hátt og þeim þakkað fyrir kveðjuna. Endaði pósturinn á orðunum „sjáumst fljótlega“ og því ljóst að hljómsveitin ætlar sér fljótlega að kíkja til ítölsku borgarinnar.
Che bello, Cesena.... https://t.co/o3ThIE4QYV #Rockin1000
— Foo Fighters (@foofighters) July 30, 2015
Per Cesena & #Rockin1000 @rockin_1000 https://t.co/7jj6DWp0Cz
— Foo Fighters (@foofighters) July 31, 2015