Karlmannlegt að vera píkustrákur

Vaginaboys
Vaginaboys Eggert Jóhannesson

Hljómsveitin Vaginaboys setti tónlistardagskrá Innipúkans af stað í gær við góðar undirtektir á skemmtistaðnum Húrra. Hátíðin fer fram um helgina þar og á Gauknum, tveimur skemmtistöðum í miðbæ Reykjavíkur. Athygli vakti að hljómsveitin kom fram undir nafnleynd og spilar hún alltaf grímuklædd.

„Við viljum láta tónlistina tala sinu máli,“ segir tvíeykið grímuklædda í samtali við mbl.is. „Það á ekki að þurfa meira en það. Við viljum ekki taka þátt í neinum glamúr eða útlitsdýrkun. Við viljum ekki tengja manneskjuna við tónlistina heldur tónlistina við fólkið, lífið og internetið.“

Gestir Innipúkans voru hinir kátustu.
Gestir Innipúkans voru hinir kátustu. Eggert Jóhannesson

Hljómsveitin tróð fyrst upp í maí á þessu ári en hefur verið lengur til í upptökuverum og á netinu. Meðlimir sveitarinnar eru æskuvinir en ekki fæst gefið upp hvaðan þeir koma. Aðspurðir svöruðu þeir svona:

„Við komum bara frá netinu. Internetið er okkar hverfi. Við vorum fyrst bara á Facebook en nú erum við komnir á Twitter og nú síðast á Myspace og fleiri miðla. Næst ætlum við að reyna að komast á Spotify.“ 

Auk þess að gefa lög út á netinu hyggst tvíeykið gefa út disk, kassettu og vínil. „Við styðjum tónlist í föstu formi þótt við séum rosalega internetvæddir. Það gefur tónlistinni ákveðna sál að fólk geti handleikið hana og fundið fyrir henni. Hún lifir lengur í föstu formi, því internetið gleymir mörgu.“

Nafn hljómsveitarinnar segja meðlimir vera tilraun til að breyta merkingu orðs sem er notað á niðrandi hátt.

„Vaginaboys, sem þýðir píkustrákar, er fallegt orð og mér finnst synd að það sé notað með niðrandi hætti,“ segir annar meðlimur sveitarinnar. „Með því að nota það um sjálfa okkur vonumst við til þess að það hætti að þykja niðrandi,“ segir hann, en orðið hefur hann að eigin sögn séð notað á samfélagsmiðlinum Twitter í niðrandi merkingu.

„Þetta er notað um menn sem þykja ekki karlmannlegir, en það er karlmannlegt að vera þú sjálfur, þannig að í okkar tilfelli er karlmannlegt að vera Vaginaboys. Sjálfstraust er sexí.“

Vefsíða hljómsveitarinnar

Facebook-síða hljómsveitarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes