Karlmaður í Hvíta-Rússlandi hefur verið handtekinn fyrir að stela Bangsímon-bíl úr verslunarmiðstöð í byrjun maí. Myndband úr eftirlitsmyndavélum sýnir manninn keyrandi um á leikfangabílnum.
Í myndskeiðinu sést maðurinn keyra í rólegheitum út á meðan hann talar í símann. Lögreglan lýsti eftir fólki sem gæti vitað eitthvað um þetta mál, og rúmum tveimur mánuðum eftir atvikið er sökudólgurinn fundinn.
Samkvæmt hvítrússneskum fjölmiðlum gaf verkamaður sig fram við lögreglu og sagðist vera sá seki. Hann hefði verið mjög drukkinn þegar atvikið átti sér stað og myndi ekki hvar hann losaði sig við Bangsímon-bílinn. Bíllinn er ennþá ófundinn.