Khloe Kardashian og systur hennar Kourtney og Kim kalla fyrrum stjúpföður sinn Caitlyn Jenner enn Bruce. Þetta viðurkenndi Khloe í viðtali við þáttinn The Project. Þar lýsti hún því að fjölskyldan væri nú búin að átta sig á kynleiðréttingunni en það eina sem þau eigi eftir að breyta sé þetta. Jenner hefur þó sjálf gefið þeim leyfi til að halda áfram að kalla sig Bruce.
„Okkur finnst ekki gaman að segja að Bruce sé farinn. Þess vegna höfum við systurnar haldið áfram að kalla hana Bruce með hennar samþykki,“ sagði Khloe.
Jenner birtist á forsíðu tímaritsins Vanity Fair í apríl sem Caitlyn Jenner. Hún vill að heimurinn sjái sig sem Caitlyn Jenner en aðrar reglur virðast gilda um nánustu fjölskyldu.
„Hún leyfir okkur að kalla sig hvaða nafn sem við viljum. Þegar maður hringir í hana heyrir maður sömu rödd og Bruce var með. Það er því erfitt að átta sig á að maður sé að tala við Caitlyn ef hún er ekki viðstödd.“
Jenner hefur viðurkennt að henni þyki afar erfitt að þróa kvenlegri rödd. Í stiklu úr þáttunum I Am Cait segir hún: „Konur geta ekki tengt við þetta raddar dæmi, þær sjá ekki hvað það er mikilvægt fyrir mig.“