Hvað myndir þú segja ef þú værir beðin/n álits á Miley Cyrus. Jimmy Kimmel vildi komast að því og fékk því hina áströlsku Janet til að spyrja fólk á förnum vegi allskonar spurninga sem varða söngkonuna.
Það sem fólkið veit ekki er að Miley er sjálf í dulargervi sem Ástralinn Janet. Henni tekst ótrúlega vel að halda andliti, meðal annars þegar einn viðmælandi hennar spyr hana hvað pabbi hennar heiti, en faðir hennar er söngvarinn og leikarinn Billy Ray Cyrus.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="https://www.youtube.com/embed/juSrk9VUkUU" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>