Miley Cyrus var kosin versta stjörnufyrirmyndin í könnun á meðal foreldra breskra barna. Um 78% foreldra sem eiga börn undir tíu ára aldri segja Cyrus vera farna út af sporinu og að þeir vilji ekki að börnin sín líti á hana sem fyrirmynd.
Rannsóknin var framkvæmd á síðunni Vouchercloud og spurði 2287 foreldra sem eiga barn undir tíu ára aldri hvort það væri einhver stjarna sem þau vildu ekki að barnið tæki sér til fyrirmyndar.
Cyrus var efst á lista yfir kvenkynsstjörnur. Um 54% vildu að börnin tækju sér Nicki Minaj ekki sem fyrirmynd og um 43% að Kim Kardashian yrði ekki fyrirmynd.
Eftstur á lista á meðal karlkynsstjarna var Kanye West með 56%. Næstur á eftir honum kom Justin Bieber með 55% og þar á eftir Zayn Malik fyrrum meðlimur strákagrúppunnar One Direction.