Minnisstæða kynlífsatriðið með þeim Milu Kunis og Natalie Portman í myndinni Black Swan þykir besta kynlífsatriði kvikmyndasögunnar samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar.
Það hitnaði í kolunum á milli karaktera Kunis og Portman í Black Swan og kvikmyndaáhugafólk virðist vera hrifið af atriðinu. Þetta er besta kynlífsatriði allra tíma að mati meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnun á dögunum. Könnunin var gerð af breska fyrirtækinu VoucherCodePro.
Þetta er svo topp tíu listinn yfir bestu kynlífsatriði kvikmyndasögunnar að mati þátttakenda könnunarinnar.
1) Natalie Portman og Mila Kunis í Black Swan
2) Ryan Gosling og Rachel McAdams í The Notebook
3) Jake Gyllenhaal og Heath Ledger í Brokeback Mountain
4) Leonardo Di Caprio og Kate Winslet í Titanic
5) Jamie Dornan og Dakota Johnson í 50 Shades of Grey
6) Richard Gere og Julia Roberts í Pretty Woman
7) Robert Pattinson og Kristen Stewart í Twilight
8) Michael Douglas og Glenn í Close Fatal Attraction
9) James Spader og Maggie Gyllenhaal í Secretary
10) Patrick Swayze og Jennifer Grey í Dirty Dancing