Rússíbanareið hefur sínar hæðir og lægðir. Það má vel skella sér einn í rússíbana, en ferðin verður miklu skemmtilegra með einhvern sér við hlið.
Einhvern veginn svona hljómaði upphaf bónorðs Austin Crecelius, þar sem hann bað kærustunnar sinnar í skemmtigarði á dögunum.
Sjaldan hefur hugtakið „tilfinningaleg rússíbanareið“ átt betur við.
Myndbandið hefur farið sigurför um netheima, enda hjartnæmt með eindæmum.
Viðbrögð kærustunnar má sjá hér að neðan.