Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen opinberaði að hún og eiginmaður hennar, John Legend, eigi von á sínu fyrsta barni.
Teigen deildi mynd og orðsendingu á Instagram þar sem stóð:
„John og ég erum glöð að tilkynna að við eigum von á barni. Eins og mörg ykkar vita höfum við verið að reyna í nokkurn tíma. Það hefur ekki verið auðvelt, en við héldum áfram að reyna því við getum ekki beðið eftir að stækka fjölskylduna. Við erum svo spennt að þetta sé loksins að gerast. Takk fyrir öll fallegu orðin og umhyggjuna. Ég hlakka til allra bumbustrokanna.“
Teigen greindi frá því á dögunum að hún og eiginmaður hennar hefðu lengi verið að reyna að eiga barn, en þau hefðu glímt við ófrjósemi. Þetta eru því miklar gleðifréttir fyrir hjónin.
A photo posted by chrissy teigen (@chrissyteigen) on Oct 12, 2015 at 4:55pm PDT