Í gær birti Vice viðtal við rokksveitina Eagles of Death Metal, þar sem hún lýsir hryllingnum sem átti sér stað í París, 13. nóvember síðastliðinn.
Sveitin var hálfnuð með tónleika sína, sem fram fóru á hljómleikastaðnum Bataclan, þegar vígamenn réðust inn og hófu skothríð á tónleikagesti.
89 manns létu lífið í árásinni og fjöldi manns særðist.
Viðtalið má sjá hér að neðan.