Tyga fluttur út

Rapparinn Tyga og unnusta hans, Kylie Jenner.
Rapparinn Tyga og unnusta hans, Kylie Jenner. mbl.is/AFP

Slúðurpressan vestanhafs hefur farið mikinn undanfarið vegna sambands ungstirnisins Kylie Jenner og rapparans Tyga.

Sögusagnir hafa verið uppi um að Jenner og Tyga hafi slitið samvistir, en sjálf hafa þau neitað orðrómnum staðfastlega.

Nú hefur TMZ þó greint frá því að rapparinn sé fluttur út, en hann bjó áður í húsi raunveruleikastjörnunnar.

Ónefndur heimildamaður sagði í samtali við TMZ að parið hefði áhyggjur að því að þau litu út fyrir að vera tvíeyki, en ekki einstaklingar með sinn eigin frama. Enn fremur er því haldið fram að kynningarferð Jenner til Ástralíu, þar sem hún kynnti nýja fatalínu ásamt systur sinni Kendall Jenner, hafi valdið rifrildi hjá hjónaleysunum.

Haft er eftir heimildarmanni að þau séu enn par, og hafi raunar aldrei slitið sambandi sínu. Þau hafi þó ákveðið að bæði hefðu þau gott af örlitlu andrými.

Jenner og Tyga eyddu þó þakkargjörðinni saman, en eins og sjá má á var allt Kardashian / Jenner klanið samankomið.

thankful for my blended family

A photo posted by King Kylie (@kyliejenner) on Nov 26, 2015 at 5:06pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes