Vil ekki líta út eins og gömul strípidansmey

Leikarahjónin Joe Manganiello og Sofia Vergara stilla sér upp á …
Leikarahjónin Joe Manganiello og Sofia Vergara stilla sér upp á rauða dreglinum. AFP

Leikkonan Sofia Vergara segist jafnan vera sárþjáð á verðlaunaafhendingum, vegna þess hversu stór brjóst hennar eru. Jafnframt segir hún ekki óalgengt að henni blæði þegar hún fer úr síðkjólunum.

„Fólk segir oft að ég klæðist alltaf því sama á rauða dreglinum, en ég þekki líkama minn. Hann er mjög þrýstinn og ég er með stripparabrjóst,“ sagði leikkonan í nýlegu viðtali.

„Ég er í stærð 32DDD, og þar sem þau eru ekta eru þau út um allt. Þess vegna þurfa kjólarnir mínir að vera vel sniðnir og með miklum stuðningi. Það er svo mikið að gerast undir kjólnum mínum að mér blæðir venjulega að athöfnum loknum.“

Leikkonan viðurkenndi einnig að hún myndi líklega á endanum gangast undir skurðaðgerð til þess að láta minnka brjóstin, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Ég held að það sé ekki einu sinni í stöðunni að sleppa því að láta minnka þau. Bráðum fer ég líklega að þjást af bakverkjum. Ég myndi þó ekki láta minnka þau mikið, bara nægilega þannig að ég muni ekki líta út eins og gömul strípidansmey.“

Frétt mbl.is: Íhuga barneignir 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes