Glanstímarit og slúðurmiðlar vestanhafs halda því fram að leikarinn Gerard Butler og söngkonan Rita Ora séu að slá sér upp.
Fjölmiðlar hafa farið mikinn undanfarið eftir sögur þess efnis að Butler og Ora hafi eytt rómantískri nótt saman á glæsihóteli fyrir skemmstu.
Sjónarvottar segjast hafa séð stjörnurnar snæða saman og láta vel hvort að öðru áður en þau tékkuðu sig inn á hótelið.
Ora hefur áður verið orðuð við Calvin Harris, sem nú á í sambandi við söngkonuna Taylor Swift. Þá átti hún einnig í sambandi við Rob Kardashian, bróður raunveruleikasystranna frægu. Butler er hins vegar talinn hafa bundið enda á samband sitt og Morgan Brown fyrir skemmstu.
Hvorugt þeirra hefur viljað tjá sig um hið meinta samband, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.