Í tygjum við ótrúlega fræga konu

Liam Neeson á í sambandi við fræga, ónefnda konu.
Liam Neeson á í sambandi við fræga, ónefnda konu. Skjáskot Google

Liam Neeson hefur gefið út að hann sé í tygjum við sérlega fræga konu. Leikarinn vill þó ekki gefa út hver sú heppna er, enda segist hann ekki vilja gera hana vandræðalega.

„Ég myndi gera hana vandræðalega ef ég nefndi hana á nafn, hún er ótrúlega fræg,“ sagði leikarinn í samtali við dagblaðið Irish Independent, en bætti þó við að hann hefði í hyggju að færa henni gjöf á valentínusardaginn.

„Ég verð að gera mitt besta. Það er þó ótrúlegt hvað einfaldur blómvöndur úr nýtíndum blómum gerir fyrir konur.“

Ónefnda konan er þó hugsanlega ekki sú eina sem fær glaðning á valentínusardag, því leikarinn hefur viðurkennt að hann sendi að jafnaði út nokkrar gjafir.

„Ég sendi nokkra blómvendi og merki þá iðulega með kveðjunni: Frá írskum aðdáanda.“

Eiginkona Neesons til 16 ára, Natasha Richardson, lést í skíðaslysi árið 2009. Þau áttu saman tvo syni, Micheál og Daniel.

Natasha Richardson og Liam Neeson.
Natasha Richardson og Liam Neeson. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes