Nýtt myndband íslensku rokksveitarinnar Kaleo var frumsýnt á vef Rolling Stone í dag. Myndbandið er við lagið No Good sem er að finna í nýrri bandarískri þáttaröð sem nefnist Vinyl. Þættirnir koma úr smiðju Martin Scorsese og Mick Jagger og verða sýndir á HBO.
Myndbandið er tekið upp í United Record Pressing, stærstu verksmiðju Bandaríkjanna sem framleiðir vínylplötur í Nashville í Tennessee, en þar rokka þeir fyrir framan tryllta aðdáendur.
„Við erum afar ánægðir með að vera hluti af tónlistinni í Vinyl, og það var virkilega gaman að taka upp myndbandið,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari og gítarleikari Kaleo.