Hulunni hefur nú verið svipt af dómnefnd Söngvakeppni Sjónvarpsins en atkvæði hennar og atkvæði í símakosningu vega jafnt í fyrsta vali í úrslitum keppninnar á laugardagskvöldið kemur.
Þá kemur í ljós hvaða tvö lög eru stigahæst og þegar þau hafa verið flutt aftur, verður kosið á ný . Í það skipti ráðast úrslitin eingöngu með símakosningu landsmanna.
„Í ár verður sú breyting á að dómnefndin er skipuð 18 fagmönnum frá öllum sex kjördæmum landsins. Undanfarin ár hafa aðeins fimm setið í dómnefnd en nú er þessi háttur hafður á. Sama fyrirkomulag verður haft í Eurovisionkeppninni sjálfri í Svíþjóð í maí,” segir í tilkynningu frá RÚV.
Íslensku dómnefndina skipa:
Samúel Einarsson, tónlistarmaður.
Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, söngkennari og kórstjóri.
Valgerður Jónsdóttir, tónmenntakennari.
Baldvin Eyjólfsson, tónlistarkennari.
Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og söngkona.
Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld og formaður Tónskáldafélags Íslands.
Stefán Þorleifsson, tónlistarmaður.
Jóhann Morávek, skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
Sigrún Gróa Magnúsdóttir píanókennari.
Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður.
Erla Ragnarsdóttir, söngkona.
Eiður Arnarsson, tónlistarmaður.
Björn G. Björnsson, leikmyndateiknari og tónlistarmaður.
Margrét Eir Hönnudóttir, söngkona.
Védís Hervör Árnadóttir, söngkona.
Kamilla Ingibergsdóttir, aðstoðarmanneskja Of Monsters and Men.
Kristján Sturla Bjarnason, tónlistarmaður.
Gissur Páll Gissurarson, söngvari.