Fjölmiðlar fóru mikinn þegar Beyoncé sendi frá sér nýjustu plötu sína, Lemonade, á dögunum.
Í kjölfarið fóru aðdáendur söngkonunnar á mikinn yfirsnúning, enda fjalla textar plötunnar að miklu leyti um hjúskaparbrot og töldu flestir að innblástur væri sóttur í hjónaband söngkonunnar og Jay Z.
Aðdáendur söngkonunnar flykktust því á samfélagsmiðla þar sem þeir áreittu þær konur sem þóttu líklegar til að vera viðhald eiginmanns poppdrottningarinnar. Tvær konur urðu sérstaklega fyrir barðinu á aðdáendum Beyoncé, fatahönnuðurinn Rachel Roy og söngkonan Rita Ora.
Hvorugar hafa þær viljað ganga við sögusögnunum, og segjast blásaklausar. Í síðustu viku sendi síðan Ora frá sér yfirlýsingu á Twitter þar sem hún sagðist bera ómælda virðingu fyrir Beyoncé, og að orðrómurinn ætti ekki við rök að styðjast.
Í gær fór síðan Met Gala fögnuðurinn fram, þar sem allar helstu stórstjörnur heims voru samankomnar. Beyoncé og Rita Ora létu sig ekki vanta, en vel virtist fara á með þeim þar sem þær stilltu sér upp saman.