Raunveruleikastjarnan Caitlyn Jenner er sérlega hrifin af hraðskreiðum bílum. Á dögunum fékk hún í hendurnar glænýjan, fjólubláan Porsche 911, sem pantaði fyrir nokkrum mánuðum.
Glæsikerran er ekkert slor, en bíllinn er metinn á 176.000 Bandaríkjadali, sem samsvarar rúmlega 21,5 milljónum íslenskra króna.
Jenner er ekki ókunn kraftmiklum bílum, en hún tók upp kappakstur eftir að íþróttaferli hennar lauk, líkt og lesa má í umfjöllun Daily Mail.