Bieber flúraður í framan

Húðflúrlistamaðurinn Jonboy og Justin Bieber.
Húðflúrlistamaðurinn Jonboy og Justin Bieber. Skjáskot Instagram / Jonboytattoo

Ungstirnið Justin Bieber frumsýndi á dögunum nýtt húðflúr, en hann hefur látið skreyta andlit sitt örlitlum krossi.

Flúrið er að finna fyrir neðan auga söngvarans, en að sögn húðflúrlistamannsins hefur það sérstaka merkingu fyrir hann.

„Justin ákvað að fá sér lítinn kross nálægt augnkróknum,“ sagði húðflúrlistamaðurinn Jonboy í samtali við tímaritið Us Weekly. „Hann stendur fyrir ferðalagið að finna tilgang með Guði.“

Söngvarinn er sérlega hrifinn af húðflúrum, en hann skartar rúmlega 50 stykkjum víðsvegar um líkamann. Bieber hafði þó áður gefið út að hann hygðist ekki láta flúra sig í framan fyrr en hann væri orðinn eldri.

„Ég mundi kannski hugleiða að fá mér andlitsflúr þegar ég er orðinn gamall. Ekki eldgamall, en hugsanlega þegar ég er á fimmtugs eða sextugsaldri.“

Söngvarinn deildi mynd af nýja flúrinu á Instagram.
Söngvarinn deildi mynd af nýja flúrinu á Instagram. Skjáskot Instagram / Justin Bieber
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes