Raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian var heldur betur brugðið á dögunum, en hún taldi sig vera með barni.
Kardashian, sem þekkt er fyrir að deila lífi sínu á samfélagsmiðlum, fjárfesti í þremur pakkningum af þungunarprófum sem hún síðan notaðist við í flugi í gær. Ferlinu deildi hún síðan að sjálfsögðu með fylgjendum sínum á Snapchat.
„Ég er á baðherbergi í flugvél og ætla að taka þungunarpróf vegna þess að ég er svolítið skelkuð,“ sagði Kardashian í myndbandi sem hún sendi frá sér.
Aðdáendur stjörnunnar þurftu ekki að bíða lengi eftir niðurstöðunum, því þær fylgdu fljótlega og er Kardashian ekki með barni.
Stjarnan og eiginmaður hennar, rapparinn Kanye West, eiga saman tvö börn, hina tveggja ára North og hinn fimm mánaða gamla Saint West.
Frétt Mirror