Brotnaði niður á sviðinu

Söngkonan brosti í gegnum tárin á Billboard verðlaununum í gær.
Söngkonan brosti í gegnum tárin á Billboard verðlaununum í gær. AFP

Söngkonan Céline Dion var heiðruð á Billboard-tónlistarverðlaununum, sem veitt voru í Las Vegas í gær.

Dion hlaut nafnbótina átrúnaðargoð ársins en sonur söngkonunnar, Rene-Charles Angélil, veitti henni verðlaunagripinn. Í kjölfarið brotnaði söngkonan niður og hágrét á sviðinu.

„Ég biðst afsökunar á grátnum. Ég vil vera sterk fyrir fjölskylduna mína og börnin mín. Ég átti ekki von á þessu. Mér þykir fyrir því, ég vil ekki gráta fyrir framan ykkur. Þið gleðjið mig svo mikið,“ sagði leikkonan þegar hún tók á móti verðlaunagripnum úr höndum sonar síns.

„Ég vil þakka aðdáendum mínum. Öllum sem höfðu trú á mér, fjölskyldunni minni. Móður minni sem skrifaði mitt fyrsta lag, börnunum mínum og síðast en ekki síst ástkærum eiginmanni mínum sem ég veit að mun halda áfram að fylgjast með mér að ofan.“

Í janúar síðastliðinn lést René Angélil, eiginmaður Dion til 23 ára, eftir langa og stranga baráttu við krabbamein.

Frétt E-online

Céline Dion og sonur hennar Rene-Charles Angelil stilla sér upp …
Céline Dion og sonur hennar Rene-Charles Angelil stilla sér upp að afhendingu lokinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka