Leikkonan Eva Longoria gekk að eiga unnusta sinn, José Baston, um helgina. Mikið var um dýrðir og stórstjörnur á hverju strái.
Tískudrottningin Victoria Beckham var ekki langt undan, en hún hannaði brúðarkjól leikkonunnar sem einnig er góð vinkona hennar.
Þetta er þriðja hjónaband leikkonunnar, en á árunum 2002-2004 var hún gift leikaranum Tyler Christopher. Þá var hún einnig gift körfuboltakappanum Tony Parker frá árinu 2007-2011 líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
A photo posted by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on May 22, 2016 at 9:29am PDT