Samband Rob Kardashian og fyrirsætunnar Blac Chyna hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið. Skötuhjúin eru nýtrúlofuð, en fyrir skemmstu greindu þau frá því að von væri á litlum erfingja.
Chyna, sem heitir með réttu Angela White, birti sónarmynd af ófædda erfingjanum og jós unnustann lofi í leiðinni.
„Lengi vel hélt ég að King yrði einkabarn, að hann væri mín mesta blessun og við myndum lifa saman tvö hamingjusöm til æviloka. Ég var ekki að leita að ást, því ég hélt að ég hefði allt sem ég þarfnaðist. Sem við þörfnuðumst,“ sagði fyrirsætan í færslu á Instagram-síðu sinni.
„Hérna er ég, trúlofuð og á leiðinni að giftast einum af þeim bestu mönnum sem ég hef kynnst, sem elskar King og mig skilyrðislaust. Og með annan gleðimola á leiðinni.“
Chyna og Kardashian byrjuðu að slá sér upp í byrjun árs, en í apríl greindu þau frá því að þau hefðu trúlofað sig.
A photo posted by Blac Chyna (@blacchyna) on May 23, 2016 at 6:28pm PDT