Samband Blac Chyna og Rob Kardashian hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið. Parið trúlofaði sig nýlega, en stuttu seinna greindu skötuhjúin frá því að þau ættu von á barni.
Fyrirsætan er dugleg að greina frá lífi sínu á samfélagsmiðlum og er óhrædd að setja inn af sér myndir. Þá birti hún á dögunum fyrstu myndina af krílinu sem enn er í móðurkviði.
Í gær stillti hún sér svo upp og tók mynd af blómlegri kúlunni sem er í örum vexti.